dcsimg

Taxodium ascendens ( islanti )

tarjonnut wikipedia IS

Taxodium ascendens[1], sem kalla má tjarnasýprus, er lauffellandi barrtré frá Norður-Ameríku. Margir grasafræðingar telja hann afbrigði af fenjasýprus (Taxodium distichum), sem T. distichum var. imbricatum, fremur en sjálfstæða tegund, en búsvæði þeirra er annað, en hann kemur fyrir í hægum mýraám, tjörnum og mýrum án mikils árframburðar.

Lýsing

Taxodium ascendens verður að jafnaði um 15 - 18 m hátt. Miðað við T. distichum, er barrið styttra (3-10mm langt), grennra og er á sprotum sem eru uppréttir fremur en láréttir. Bolurinn er útvíður neðst, jafnvel á ungum trjám, sem hjálpar trénu með festu í mjúkum leðjukenndum jarðveginum. Könglarnir eru einnig minni, ekki yfir 2,5 smí þvermál. Börkurinn er einnig með ljósari gráan lit. Svipað fenjasýprus, þá er tjarnasýprus líka með útvöxt sem kallaður er sýprushné. Hámarksaldur þessarar tegundar er talinn vera um 1000 ár. Þetta gæti verið vanmat þar sem tré sem stóð í Longwood, „Florida's Big Tree Park“, var talið vera meira en 3,400 ára gamalt.

Útbreiðsla

Tegundin vex í suðaustur Bandaríkjunum, frá suðaustur Virginia til suðaustur Louisiana og suður í Flórída fyrir utan Florida Keys.

Búsvæði

 src=
T. ascendens í mýraá, Okefenokee Swamp, Georgía Bandaríkjunum

Taxodium ascendens vex í grunnum tjörnum, við jaðar vatna, mýrum og votlendi. Hann kýs helst blautan og súran jarðveg með lélegu frárennsli, upp í 30m yfir sjávarmáli.

Tilvísanir

  1. "Taxodium ascendens". Natural Resources Conservation Service PLANTS Database. USDA.

lisenssi
cc-by-sa-3.0
tekijänoikeus
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
alkuperäinen
käy lähteessä
kumppanisivusto
wikipedia IS

Taxodium ascendens: Brief Summary ( islanti )

tarjonnut wikipedia IS

Taxodium ascendens, sem kalla má tjarnasýprus, er lauffellandi barrtré frá Norður-Ameríku. Margir grasafræðingar telja hann afbrigði af fenjasýprus (Taxodium distichum), sem T. distichum var. imbricatum, fremur en sjálfstæða tegund, en búsvæði þeirra er annað, en hann kemur fyrir í hægum mýraám, tjörnum og mýrum án mikils árframburðar.

lisenssi
cc-by-sa-3.0
tekijänoikeus
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
alkuperäinen
käy lähteessä
kumppanisivusto
wikipedia IS