dcsimg

Kóríandrajurt ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Kóríandrajurt eða kóríander (fræðiheiti: Coriandrum sativum) einnig nefnd cilantro, kínversk steinselja eða dhania er einært grænmeti af sveipjurtaætt. Á spænsku er kóriander nefndur cilantro og er það orð algengt í Ameríku vegna þess að kóriander er algengur í mexíkóskum réttum. Oftast eru fersk laufblöð og þurrkuð fræ af kóriandrajurtinni notuð. Kóríandarjurt inniheldur andoxunarefni.

Í Indlandi eru þurrkuð kórianderfræ kölluð dhania. Fræin eru með sítrónubragði þegar þau eru mulin. Bragðinu er oft lýst eins og það sé heitt kryddbragð, með hnetukeim og appelsínubragði. Kórianderfræ eru krydd í kryddblöndunni garam masala og í karrýblöndum í indverskri matargerð er kóriander oft notað með kúmini. Ristuð kórianderfræ eða dhana dal eru borðuð beint.

Kóriander vex villtur á stóru svæði í Austur- og Suður-Evrópu og hefur verið ræktaður um þúsundir ára. Kóriander var fluttur til Norður-Ameríku árið 1670.

Jurtin Eryngium foetidum gefur sterkara en svipað bragð og kóriander. Hún er þekkt undir nafninu culantro.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS