Kínarauðviður (fræðiheiti: Metasequoia glyptostroboides) er hraðvaxta, lauffellandi barrtré,[1] og er eina núlifandi tegund ættkvíslarinnar Metasequoia, og ein þriggja tegunda undirættarinnar Sequoioideae. Hún vex nú eingöngu villt á rökum neðri hlíðum og við fjalladali á mörkum Hubei og Hunan héraða og Chongqing sýslu í suðurhluta mið Kína,[2] ekki síst í Lichuan héraði Hubei. Þó að hann nái minnstri hæð rauðviða nær kínarauðviður að minnsta kosti 50m hæð.
Ættkvíslinni Metasequoia var upphaflega lýst 1941 af plöntusteingerfingafræðingnum Shigeru Miki sem útbreiddri útdauðri ættkvísl byggt á steingerfingum, áður en athygli var vakin fáum árum seinna á lundum sem fundust lifandi í mið Kína sem voru fyrst fundnir af T. Kan.[3] Enginn steingerfinganna sem fannst var yngri en 150 milljón ára. Tegundin er í útrýmingarhættu í heimkynnum sínum vegna skógarhöggs, og hefur því verið mjög plantað í trjásöfn víða um heiminn , þar sem hann hefur reynst vinsælt og hraðvaxta yndistré.
1943, Zhan Wang (1911–2000, kínerskur skógarvörður), safnaði sýnishornum af óþekktu tré í þorpinu Maodaoqi eða Modaoxi (núverandi stafsetning, Moudao)[4] í Lichuan, Hubei héraði — sem er nú talið sama tréð og Kan fann.[5] Eintökin voru greind sem óþekkt tegund, en seinni heimsstyrjöld seinkaði frekari rannsóknum.
Prófessorarnir Wan Chun Cheng og Hu Xiansu tengdu á milli ættkvíslar Miki og lifandi trjánna í sem fundust 1946,[6] og gáfu tegundinni nafnið "glyptostroboides", þar sem tegundin líkist kínversku ættkvíslinni Glyptostrobus.[7]
Eintak í Croxteth Hall í Liverpool: summar barr
.
Kínarauðviður (fræðiheiti: Metasequoia glyptostroboides) er hraðvaxta, lauffellandi barrtré, og er eina núlifandi tegund ættkvíslarinnar Metasequoia, og ein þriggja tegunda undirættarinnar Sequoioideae. Hún vex nú eingöngu villt á rökum neðri hlíðum og við fjalladali á mörkum Hubei og Hunan héraða og Chongqing sýslu í suðurhluta mið Kína, ekki síst í Lichuan héraði Hubei. Þó að hann nái minnstri hæð rauðviða nær kínarauðviður að minnsta kosti 50m hæð.
Ættkvíslinni Metasequoia var upphaflega lýst 1941 af plöntusteingerfingafræðingnum Shigeru Miki sem útbreiddri útdauðri ættkvísl byggt á steingerfingum, áður en athygli var vakin fáum árum seinna á lundum sem fundust lifandi í mið Kína sem voru fyrst fundnir af T. Kan. Enginn steingerfinganna sem fannst var yngri en 150 milljón ára. Tegundin er í útrýmingarhættu í heimkynnum sínum vegna skógarhöggs, og hefur því verið mjög plantað í trjásöfn víða um heiminn , þar sem hann hefur reynst vinsælt og hraðvaxta yndistré.
Bonsai af kínarauðviði (Metasequoia glyptostroboides)1943, Zhan Wang (1911–2000, kínerskur skógarvörður), safnaði sýnishornum af óþekktu tré í þorpinu Maodaoqi eða Modaoxi (núverandi stafsetning, Moudao) í Lichuan, Hubei héraði — sem er nú talið sama tréð og Kan fann. Eintökin voru greind sem óþekkt tegund, en seinni heimsstyrjöld seinkaði frekari rannsóknum.
Prófessorarnir Wan Chun Cheng og Hu Xiansu tengdu á milli ættkvíslar Miki og lifandi trjánna í sem fundust 1946, og gáfu tegundinni nafnið "glyptostroboides", þar sem tegundin líkist kínversku ættkvíslinni Glyptostrobus.