dcsimg

Hverfisveppur ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Hverfisveppur (fræðiheiti: Pholiota mutabilis) er hattsveppur af blínusveppsætt sem vex í klösum, einkum á dauðum trjástubbum í skóglendi. Hatturinn verður 3-6sm í þvermál og stafurinn er langur og mjór með hring. Sveppurinn er ljósbrúnn en neðri hluti stafsins dökkur og flagnaður. Hverfisveppur þykir góður ætisveppur. Aðeins hatturinn er étinn þar sem stafurinn er of seigur. Hins vegar er varasamt að tína þennan svepp vegna þess hve auðvelt er að rugla honum saman við eitraðar tegundir, eins og t.d. hina baneitruðu viðarkveif.

 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS