dcsimg

Lækjadepla ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Lækjadepla (fræðiheiti: Veronica serphyllifolia) er depla af græðisúruætt.

Lýsing

Blóm lækjadeplu eru ljósblá, í löngum, gisnum klasa. Þau eru 3 til 5 mm í þvermál og bikarblöðin eru græn og snubbótt. Fræflarnir eru tveir í hverju blómi og frævan hefur einn stíl sem verður að öfughjartalaga aldini.

Blöðin eru gagnstæð og gisin á stönglinum. Þá eru þau sporbaugótt eða egglensulaga, með stuttan stilk eða stilklaus. Jurtin öll er 10 til 20 sentímetra há og vex meðfram lækjasytrum, í skurðum eða í deigu graslendi.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Lækjadepla: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Lækjadepla (fræðiheiti: Veronica serphyllifolia) er depla af græðisúruætt.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS