dcsimg

Lófótur ( Icelandic )

provided by wikipedia IS

Lófótur (eða hesthali) (fræðiheiti: Hippuris vulgaris) er vatnajurt sem vex út í grunnu vatni, en teygir sig töluvert hátt upp úr vatninu. Dökkgrænn holur stöngullinn er þéttsettur kransstæðum blöðum. Hæð stöngulsins fer eftir vatnsdýpinu, og getur verið 20 til 70 cm hár. Örsmá blómin standa í blaðöxlunum. Lófótur vex líka stundum í mýrum og fenjum, einkum þar sem vatn flýtur yfir. Lófótur blómgast í júlí.

 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS