Abies bracteata, eða Broddþinur, er sjaldgæfur þinur, bundinn við hlíðar og botna grýttra gilja í Santa Lucia fjöllum við miðströnd Kaliforníu, Bandaríkjunum.
Þetta er 20 til 35 metra hátt tré, með grönnu, turnspírulegu formi. Börkurinn er rauðbrúnn með hrukkum, línum og kvoðublöðrum. Greinarnar eru niðursveigðar. Barrið er nálarlaga, og raðast í spíral eftir sprotanum, en er undið neðst til að standa út til hvorrar hliðar á sprotanum í tvemur framvísandi röðum með v laga geil ofan til á sprotanum; hart og stíft með hvössum enda, 3.5 tl 6 sm langt og 2.5 til 3 mm breitt, með tvær skærhvítar loftaugarákir að neðan. Könglarnir eru egglaga, 6 til 9 sm langir (að 12 sm með stoðblöðum), og er frábrugðinn öðrum þintegundum með að endi stoðblaðanna er mjög langur, útbreiddur, gulbrún burst (bristle) 3 til 5 sm langur; könglarnir sundrast að hausti til að losa vængjuð fræin. Karlkyns könglarnir eru 2 sm langir og losa frjóduftið að vori.
Abies bracteata, eða Broddþinur, er sjaldgæfur þinur, bundinn við hlíðar og botna grýttra gilja í Santa Lucia fjöllum við miðströnd Kaliforníu, Bandaríkjunum.