dcsimg
Image of Caucasian Spruce
Creatures » » Plants » » Gymnosperms » » Pines »

Caucasian Spruce

Picea orientalis (L.) Peterm.

Kákasusgreni ( Icelandic )

provided by wikipedia IS


Kákasusgreni, fræðiheiti Picea orientalis[3] er grenitegund ættuð frá Kákasus og aðliggjandi svæði í norðaustur Tyrklandi.

Lýsing

Þetta er stórt sígrænt barrtré, að 30 til 45 metra hátt (einstaka sinnum að 57 metrum), með stofnþvermál að 1.5 meter (einstaka sinnum að 4 metrar). Kákasusgreni finnst einnig í norður Íran, en þar hefur útbreiðslan dregist saman vegna skógareyðingar.

Sprotarnir eru dauf gulbrúnir, og nokkuð hærðir. Barrið er nálarlaga, það stysta á nokkru greni, 6 til 8 mm langt, tígullaga í þversniði, dökkgrænt með óáberandi loftaugarásum. Könglarnir eru mjó-sívalir til keilulaga, 5 til 9 sm langir og 1.5 sm breiðir, rauðir til purpuralitir óþroskaðir og verða við þroska dökkbrúnir (5 til 7 mánuðum eftir frjóvgun), og eru með stífar, mjúkávalar hreisturblöðkur.

Þetta er vinsælt prýðistré í stórum görðum, vel metið í Norður Evrópu og Bandaríkjunum vegna aðlaðandi barrs og hæfileika til að vaxa í margskonar jarðvegi. Það er einnig ræktað í litlum mæli í skógrækt sem jólatré, fyrir timbur og pappírs framleiðslu, þó að hægari vöxtur miðað við rauðgreni dragi úr mikilvægi þess utan náttúrulegs útbreiðslusvæðis þess. Þessi tegund hefur fengið Royal Horticultural Society's Award of Garden Merit.[4] Algengt skrautafbrigði þess er Picea orientalis 'Aureospicata', sem er með gylltan lit á nýju barri að vori.

Ræktun á Íslandi

Stæðilegt Kákasusgreni er í Grasagarði Reykjavíkur. Lítið eitt er til af því annarsstaðar á landinu.

Tilvísanir

  1. {{{assessors}}} (1998). Picea orientalis. 2006 Rauði listi IUCN yfir tegundir í hættu. IUCN 2006. Sótt 12 May 2006.
  2. Kákasusgreni. The Plant List. Sótt 27 march 2015.
  3. „BSBI List 2007“. Botanical Society of Britain and Ireland. Afrit af upprunalegu (xls) geymt þann 2015-02-25. Sótt 17. október 2014.
  4. „RHS Plant Selector - Picea orientalis. Sótt 30. júní 2013.

Auður I. Ottesen (2006). Barrtré á Íslandi. Sumarhúsið og garðurinn. bls. 100. ISBN 9979-70-025-4.

Ytri tenglar

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Kákasusgreni: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS


Kákasusgreni, fræðiheiti Picea orientalis er grenitegund ættuð frá Kákasus og aðliggjandi svæði í norðaustur Tyrklandi.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS