dcsimg

Strandreyr ( исландски )

добавил wikipedia IS

Strandreyr (fræðiheiti: Phalaris arundinacea) er hávaxið gras sem oft myndar þéttar breiður við ár og læki og á öðrum votlendissvæðum í heimkynnum sínum, en tegundin er útbreidd í Evrópu, Asíu, norður Afríku og Norður-Ameríku.[1][2]

Lýsing

Stönglarnir geta náð 2 m hæð.[3] Blöðin eru yfirleitt græn, en geta verið mislit. Punturinn er að 30 sm langur.[3] Öxin eru ljósgræn, oft með dekkri rákum.[4] Þetta er fjölært gras sem breiðist út með jarðstönglum.[3]

Nytjar

Nokkur afbrigði eru í ræktun í görðum með tví eða þrílit blöð; stundum nefnd randagras – svo sem 'Picta', 'Castor' og 'Feesey'. Það seinna er með bleikum blæ á blöðunum.[5] Það er þurrkþolið, en vex best í nægu vatni og jafnvel sem tjarnargróður.[5]

Úr Plants for a Future (pfaf.org): Ætir hlutar: blöð; rót; fræ; stöngull.

P. arundinacea er einnig ræktað sem dýrafóður, ýmist til beitar eða í hey.

Tilvísanir

  1. "Phalaris arundinacea". Germplasm Resources Information Network (GRIN). Agricultural Research Service (ARS), United States Department of Agriculture (USDA).
  2. Phalaris arundinacea. USDA NRCS Plant Guide.
  3. 3,0 3,1 3,2 Waggy, Melissa, A. 2010. Phalaris arundinacea. In: Fire Effects Information System. U.S. Department of Agriculture, Forest Service, Rocky Mountain Research Station, Fire Sciences Laboratory.
  4. Phalaris arundinacea. Flora of China.
  5. 5,0 5,1 Phalaris arundinacea var. picta 'Feesey'.

Ytri tenglar

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist
Wikilífverur eru með efni sem tengist
 src= Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
лиценца
cc-by-sa-3.0
авторски права
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
изворно
посети извор
соработничко мреж. место
wikipedia IS

Strandreyr: Brief Summary ( исландски )

добавил wikipedia IS

Strandreyr (fræðiheiti: Phalaris arundinacea) er hávaxið gras sem oft myndar þéttar breiður við ár og læki og á öðrum votlendissvæðum í heimkynnum sínum, en tegundin er útbreidd í Evrópu, Asíu, norður Afríku og Norður-Ameríku.

лиценца
cc-by-sa-3.0
авторски права
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
изворно
посети извор
соработничко мреж. место
wikipedia IS