dcsimg

Kea ( Icelandic )

provided by wikipedia IS
 src=
Kea við Artúrs-skarð í snjókomu.
 src=
Undirvængir kea.
 src=
Útbreiðsla.
 src=
Kea-fuglar með Mount Cook í baksýn.

Kea (Nestor notabilis) er stór páfagaukur sem finnst í skógum og fjalllendi á Suðurey Nýja Sjálands. Áður var hann veiddur en árið 1986 var hann verndaður. Hann flokkast undir viðkvæmar tegundir samkvæmt IUCN.

Kea-fuglinn er ólífugrænn með appelsínugulan lit undir vængjum. Goggur er langur, boginn og grábrúnn. Hann hefur talsverðar gáfur, er forvitinn, getur leyst þrautir og notað verkfæri. Hann er stundum kallaður trúður fjallanna en hann getur verið fullforvitinn og verið stríðinn þegar hann á við muni manna.

Kea-fuglar lifa saman í hópum oft rúmlega tugur fugla. Hreiðugerð er í dældum og við tré. Þeir eru alætur og borða meira en 40 plöntur, aðra fugla og jafnvel spendýr. Þeir hafa sést ráðast á kindur.

Kakapó-fuglinn sem er sunnarlega á eyjunni er skyldur kea.

Heimild

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist

Fyrirmynd greinarinnar var „Kea“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 25. feb. 2017.

license
cc-by-sa-3.0
copyright
Höfundar og ritstjórar Wikipedia
original
visit source
partner site
wikipedia IS

Kea: Brief Summary ( Icelandic )

provided by wikipedia IS
 src= Kea við Artúrs-skarð í snjókomu.  src= Undirvængir kea.  src= Útbreiðsla.  src= Kea-fuglar með Mount Cook í baksýn.